þriðjudagur, 24. júní 2014

Hollustunammi

Hráefniwww.pjatt.is
  • 1 bolli hnetusmjör
  • 2/3 bolli hunang
  • 1/2 bolli kókosolíu
  • 2 bollar haframjöl
  • 1 1/4 bollar 70% súkkulaði,  skorið smátt
  • 3/4 bolli þurrkuð trönuber
Aðferð
  1. Bræðið saman hnetusmjör, hunang og kókosolíu við vægan hita.
  2. Takið pottinn af hellunni, bætið við höfrum, súkkulaði og trönuberjum.
  3. Hrærið saman þar til súkkulaðið er bráðið.
  4. Blandan er sett í stórt eldfast mót.
  5. Sett í ísskáp og kælt þar til blandan hefur stífnað, um klukkustund.
  6. Skerið í góða munnbita.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli